Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband

Atburðir

Kvöldmessa í Tálknafirði

Sunnudagskvöldið 29. júlí kl. 21:00 verður kvöldmessa í Stóru-Laugardalskirkju við Tálknafjörð. Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir messar.

Messa í Unaðsdal

Sunnudaginn 29. júlí kl. 14:00 er messa í Unaðsdalskirkju á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp. Messan er haldin í tengslum við fjölskylduhátíð í Dalbæ. Þetta er tilvalin upplifun fyrir ferðafólk, sem getur í leiðinni skoðað Kaldalónið. Það er sr. Magnús Erlingsson, sóknarprestur á Ísafirði, sem predikar og þjónar fyrir altari. Ólafur Kristjánsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Bolungarvík leikur á orgel undir almennan safnaðarsöng.

Léttmessa á Reykhóladögum

Sunnudaginn 29. júlí kl. 11:00 verður léttmessa í Reykhólakirkju í sambandi við Reykhóladaga. Um létta og skemmtilega messu verður að ræða þar sem allar kynslóðir safnast saman og eiga gæðastund með Guði og góðu fólki.

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir