Líkfundur á Ströndum
Handboltaæfingahelgi - FRÍTT fyrir alla
Núna um helgina fara fram æfingar í Torfnesi undir handleiðslu landsliðskvenna (meðal þeirra sem mætir er Hrafnhildur Skúladóttir) sem og unglingalandsliðsþjálfara í íþróttinni. Hörður og HSÍ bjóða upp á þessar æfingar í sameiningu og ekkert kostar að taka þátt. Um að gera að mæta og sjá hvað er í boði óháð því hvort viðkomandi æfi handbolta nú þegar eða ekki - og í kjölfarið er engin skuldbinding á að halda áfram eftir námskeiðið.
María Rut formaður Stúdentaráðs HÍ
María Rut Kristinsdóttir hefur verið kjörin formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Hún er oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, sem vann meirihluta í kosningum til Stúdentaráðs í febrúar. María Rut er Flateyringur og er að ljúka grunnnámi í sálfræði við HÍ. Á síðastliðnu starfsári Stúdentaráðs sat María Rut í stjórn ráðsins auk þess að sitja í Háskólaráði og Jafnréttisnefnd Háskóla Íslands.
Í tilkynningu segir að María Rut telji mikilvægt að á starfsárinu muni Stúdentaráð halda áfram að berjast fyrir samþykkt á frumvarpi um Lánasjóð íslenskra námsmanna sem meðal annars feli í sér styrk til námsmanna. Einnig leggi María áherslu á að nýkjörin Sviðsráð fræðasviðanna fimm fari af stað með krafti og vinni að því að bæta það sem bæta þarf á hverju fræðasviði fyrir sig. „Stúdentaráð mun halda áfram að berjast fyrir auknu fjárframlagi til háskólans svo tryggt verði að greitt sé með öllum nemendum háskólans. María leggur áherslu á að Háskóli Íslands verði fjölskylduvænn og góður kostur fyrir alla þá sem hafa áhuga á háskólanámi.“
Sjómaður hætt kominn
Í óefni stefndi, þegar vél bilaði i litlum fiskibáti þegar hann var staddur aðeins eina sjómílu norðvestur af Rit, í mynni Ísafjarðardjúps í gærdag. Bátinn tók að reka í átt að grýttri ströndinni. Bátsverjinn kallaði þegar eftir hjálp og var björgunarskip Landsbjargar sent af stað frá Bolungarvík. En á meðan það var á leiðinni kom annar fiskibátur að bilaða bátnum og dró hann frá landi, þannig að ekki var lengur hætta á ferðum. Björguarskipið dró svo bilaða bátinn til hafnar.
Vilborg gengur með Gísla í Uppsölum
Fjallagarpurinn Vilborg Arna Gissurardóttir er nú stödd í um 4000 metra hæð í hlíðum hæsta fjalls N-Ameríku, Denali sem er jafnframt fyrsti áfangi í leiðangri hennar á hæstu tinda allra heimsálfa. Meðal þess sem hún ber með sér á tindinn er bókin Eintal, með ljóðum og hugleiðingum Gísla í Uppsölum.
Vinsælar fréttir
- Með átröskun og berst gegn fordómum: „Fékkstu vinnu í sjoppu í sparnaðarskyni?“
- Vestfirskir fimm aura brandarar
- Líkfundur á Ströndum
- Handboltaæfingahelgi - FRÍTT fyrir alla
- Ekki væsir um okkar fólk
- Búið að opna leiðina um Kjálkafjörð
- Sjómaður hætt kominn
- Rafmagnsleysi á Vestfjörðum
- „Við þurfum alvöru byggðastefnu til að brúa bilið“
- Fáir á ferli fyrir vestan
- Myndband: Dramatík á Torfnesi
- Íslensk kvikmyndahelgi framundan: Landsmönnum boðið í bíó á 17 stöðum
Gísli Súrsson fer heim í Súrnadal
Verðlaunaleikurinn Gísli Súrsson hefur farið víða frá því leikurinn var frumsýndur árið 2005. Um allt Ísland fyrir vestan, austan, norðan og sunnan. Um Evrópu í Albaníu, Luxemburg og tvívegis í Þýskalandi. Enn er sýningin í landvinningum því í vikunni bætist Noregur í sýningarbókhald Gísla Súrssonar. Ekki nóg með það heldur er í raun verið að fara með Gísla heim því sýnt verður í hans fæðingarbæ nefnilega Súrnadal í Noregi.
Árlega er haldin mikil menningarveisla í Súrnadal í Noregi sem nefnist Varsöghelga. Þar er boðið uppá menningu og listir alla daga. Leikritið um Gísla Súrsson verður sýnt tvívegis á þessari hátíð sem fram fer í þessari viku. Einnig verða sýnd brot og kynningar á leikverkinu á hátíðinni. Það verður sannarlega gaman að sýna þessa einstöku sýningu okkar í heimahögum sögupersónunnar. Nú eigum við bara eftir að sýna í Hergilsey þá höfum við sýnt Gísla á öllum helstu sögustöðum þess Súra.
%foreign_more%Eiríkur Finnur Greipsson hættir í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 1. jú...
Á fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar á mánudag lagði Eiríkur Finnur Greipsson formaður ráðsins fram bréf þar sem hann óskaði eftir ótímabundnu leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ frá og með 1. júní næstkomandi. Eiríkur Finnur var oddviti lista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningum árið 2010. Hann gegir formennsku í bæjarráði og í nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði. Eiríkur Finnur tilkynnti fyrir nokkru að hann væri á förum úr bæjarfélaginu, en hann býr sem kunnugt er á Flateyri. Gísli Halldór Halldórsson skipaði annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins við síðustu kosningar. Reikna má með að hann muni taka sæti Eiríks Finns sem formaður bæjarráðs. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn mynda meirihluta í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar. Kosningar fara fram eftir rétt ár, í lok maí 2014.
%foreign_more%Með átröskun og berst gegn fordómum: „Fékkstu vinnu í sjoppu í spar...
Ung framhaldsskóladama lætur ekki fordóma og aðkast aftra sér frá því að vekja fólk til vitundar um helvíti átröskunar. Hún var spurð hvort hún fengi vinnu í sjoppu af því að eigandinn gæti treyst því að hún æti ekki á sig gat. Jóhanna Berta er sjálf með átröskun og hefur þrátt fyrir ungan aldur lagt sitt af mörkum með greinaskrifum til vitundarvakningar um slíka kvilla.
%foreign_more%Mikið líf við höfnina þegar trillurnar koma að landi
Það má með sanni segja að mikið líf sé á hafnarvæðinu í Bolungarvík þegar trillurnar streyma að landi eftir vel heppnaða sjóferð. Ljósmyndari Víkara myndaði lífið við höfnina í síðustu viku en þá myndaðist löndunarbið þegar strandveiðibátarnir komi til hafnar hver á eftir öðrum í fallegu vorveðri. Afraksturinn má sjá með því að smella á tengilinn hér að neðan.
%foreign_more%Guðni Páll eflist við hverja raun
Kajakræðarinn Guðni Páll Viktorsson fékk á sig brot og tognaði á baki er hann var staddur utan við Meðallandssand á miðvikudaginn og verður því næstu tvo dagana í sjúkraþjálfun. Að því búnu vonast hann til þess að geta haldið áfram för sinni hringinn í kringum landið.
%foreign_more%Eva Margrét var frábær í Svíþjóð
Eva Margrét sannaði hvers vegna hún var valin íþróttamður Ísafjarðarbæjar á norðurlandamóti U-16 kvenna sem lauk um helgina. Stelpurnar höfnuðu í fjórða sæti eftir hörkuleik gegn Danmörk um þriðja sætið, en liknum lauk með tveggja stiga sigri dönsku stúlknanna.
Eva var næststigahæsti leikmaður mótsins í 16 ára flokki kvenna með 15,8 stig að meðaltali í leik og þá var hún þriðja frákastahæst á mótinu með 8,4 fráköst að meðaltali í leik. Þetta er frábær árangur hjá stúkunni okkar og eru allir í skýjunum yfir hennar framgöngu og eru stelpurnar í þessum árgangi í mikilli framför.
%foreign_more%Viðburðardagatal
Næstu viðburðir
Vestfirðir á Instagram #Vestfirðir
Sif Huld ráðin verkefnisstjóri Byggðasamlags um málefni fatlaðs fól...
Sif Huld Albertsdóttir þroskaþjálfi hefur verið ráðin verkefnisstjóra Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks (BsVest). Stjórn BsVest, sem jafnframt er stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga, samþykkti ráðningu Sifjar fyrir skömmu. Sif Huld er 27 ára Ísfirðingur, þroskaþjálfi að mennt, auk þess sem hún er iðnmenntuð. Hún hefur veitt forstöðu Hæfingarstöðinni Hvestu hjá Ísafjarðarbæ í fæðingarorlofi forstöðumanns, auk þess að hafa starfað innan félagsþjónustu Ísafjarðarbæjar með námi.
Sif tekur við starfi verkefnisstjóra úr höndum Arnheiðar Jónsdóttur, sem sinnt hefur því frá stofnun BsVest í ársbyrjun 2011. Arnheiður hefur tekið við nýju starfi í félagsþjónustu Vesturbyggðar. Í tilkynningu þakkar stjórn BsVest Arnheiði Jónsdóttur mikilsvert starf við uppbyggingu og þróun starfsemi BsVest, um leið og hún býður Sif Huld velkomna til starfa. Í kjölfar þessara breytinga flyst starfsstöð verkefnisstjóra frá Patreksfirði til Ísafjarðar, í Vestrahúsið Árnagötu 2-4, þar sem skrifstofur Fjórðungssambands Vestfirðinga eru. Sími og netfang verkefnastjóra verður óbreytt.
%foreign_more%Borgunarbikarinn: BÍ/Bolungarvík burstaði Augnablik
Einn leikur var á dagskrá í annarri umferð Borgunarbikarsins í dag en BÍ/Bolungarvík sigraði Augnablik 7-1 á gervigrasvellinum á Ísafirði. BÍ/Bolungarvík leiddi 4-0 eftir 21 mínútu en sigur liðsins var aldrei í hættu. BÍ/Bolungarvík verður því í pottinum þegar dregið verður í 32-liða úrslitin síðar í vikunni.
BÍ/Bolungarvík 5 - 0 Augnablik
1-0 Andri Rúnar Bjarnason ('1)
2-0 Ben Everson ('5)
3-0 Nigel Quashie ('15)
4-0 Sigurgeir Sveinn Gíslason ('21)
5-0 Dennis Rasmussen Nielsen ('71)
6-0 Markaskorara vantar ('80)
7-0 Ben Everson ('86)
7-1 Markaskorara vantar ('90)
%foreign_more%
Vatnslögn sprakk á Flateyri
Laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi sprakk aðalvatnslögnin á Flateyri rétt fyrir neðan kirkjuna í bænum. Ungur piltur sem var að ganga framhjá sá grasið lyftast upp og svo spýttist vatnið út.
Vatnið rennur út á Hafnarstræti í niðurföll þar, og þar hefur myndast góður pollur að sögn Guðmundar Björgvinssonar íbúa á Flateyri. Skrúfað var fyrir vatnslögnina og var því vatnslaust í bænum fram eftir nóttu. Síðan var skrúfað frá aftur svo íbúar fengju eitthvað kalt vatn en þrýstingur er litill.
Guðjón Jóhannes Jónsson, bæjarverkstjóri Ísafjarðarbæjar, sagði í samtali við fréttastofu að von væri á efni til viðgerðar á lögninni með flugi upp úr hádegi og að gert yrði við hana í dag. Hann sagði þetta gamla asbestlögn sem hefði líklega gefið sig þar sem of mikill þrýstingur væri á vatninu þarna. Vatn yrði líklega komið á síðdegis í dag.
%foreign_more%Jakob Valgeir og Lárus Welding ákærðir
Slitastjórn Glitnis hefur höfðað skaðabótamál á hendur fimm manns vegna láns sem huldufélaginu Stími var veitt í janúar 2008. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag, en þar segir að þrjú hinna stefndu séu fyrrverandi starfsmenn Glitnis. Um er að ræða Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, Guðmund Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bankans og Guðnýju Sigurðardóttur, fyrrverandi viðskiptastjóra. Þá er útgerðarmanninum Jakobi Valgeiri Flosasyni, útgerðarmanni frá Bolungarvík og fyrrverandi stjórnarmanns í Stími og Þórleifi Stefáni Björnssyni, forstöðumanni fjárstýringar Saga Capital. Þórleifur var einnig prókúruhafi í félaginu.
Eru fimmmenningarnir ákærðir fyrir að hafa tekið ákvörðun um að veita lán til félagsins í janúar 2008, en þá lá fyrir að Stím væri ógjaldfært og hefði því fyrir löngu átt að vera búið að taka félagið til gjaldþrotaskipta.
Lánið var 725 milljónir og var komið í 833 milljónir í nóvember 2008. Þá höfðu hins vegar rúmar 466 milljónir verið greiddar inn á lánið og það eru eftirstöðvarnar sem stefnt er vegna: 366 milljónirnar.
Sem kunnugt er hefur lögfræðiskrifstofan LEX einnig stefnt Jakobi Valgeiri fyrir hönd slitastjórnar Glitnis vegna tjóns sem Glitnir á að hafa orðið fyrir vegna lánveitinga til félagsins í byrjun árs 2008.
%foreign_more%„Auðvitað var þetta sjokk“
„Auðvitað var þetta sjokk. Ég er ekkert smeykur að segja það. Þjálfunin skilaði sér vel, þegar ég var búinn að velta honum, velti ég honum upp aftur og mat stöðuna eftir það,“ sagði Guðni Páll Viktorsson kajakræðari sem lenti í vandræðum í dag þegar hann fékk á sig brotsjó. Hann þá staddur utan við Meðallandssand.
%foreign_more%Pilturinn er kominn fram
Pilturinn sem lögreglan á Vestfjörðum lýsti eftir í gærkvöldi fannst í nótt. Pilturinn var í vistun á vegum barnaverndaryfirvalda í Barðastrandasýslu en strauk þaðan snemma í gærmorgun.
%foreign_more%Huldukaðlar eða kláfferja í Gleiðarhjöllum?
Athugulir Ísfirðingar hafa tekið eftir ókennilegum böndum eða snúrum í Eyrarfjalli fyrir ofan Gleiðarhjallana á Ísafirði. Hafa þessar snúrur vakið forvitni, en engar skýringar fengist á þeim. Útilokað þykir að nokkur hafi nýtt sér klettana til að setja upp þvottasnúrur á þessum stað, nema ef vera kynnu íbúar í klettunum. Fyrir aðra væri frekar óþægilegt að burðast með þvottinn alla leið upp á fjallið, jafnvel þó svo að þar sé væntanlega góður þurrkur. Einhverjum hefur dottið í hug að framtaksamir heimamenn væru byrjaðir á því að undirbúa kláfferjuna, sem eitt sinn var rætt um að byggja og bera átti ferðamenn úr Stórurð og upp á Gleiðarhjalla og þaðan á efra fjallið. Hver veit? Skutull.is tekur við öllum upplýsingum og ábendingum um snúrurnar í Eyrarfjalli.
%foreign_more%Vestfirskir fimm aura brandarar
Það er hreinasta lífsnauðsyn að halda gleðinni, og þá helst með báðum höndum. Þetta er mat Sveinbjörns Hjálmarssonar, eða Simba verslunarmanns, og samstarfskvenna hans í Hafnarbúðinni á Ísafirði. Mitt í nýafstöðnu kosningafári vöktu skopmyndir sem Simbi hefur tekið og sett á facebook-síðu sína athygli. Simbi viðurkennir fúslega að verð brandaranna sé frekar talið í aurum en krónum þó talsverð vinna liggi í framkvæmdinni. Helgi Seljan og Jóhannes Jónsson litu inn í Hafnarbúðina.
%foreign_more%Veðrið á Vestfjörðum
- Bíldudalur kl:21:00
VNV 4 m/s, 3,0 °C - Gemlufallsheiði kl:21:00
NNA 7 m/s, 0,0 °C - Patreksfjörður kl:21:00
V 5 m/s, 3,4 °C - Reykhólar kl:21:00
N 5 m/s, 4,6 °C - Tálknafjörður kl:21:00
NV 2 m/s, 3,7 °C
- Bolungarvík kl:21:00
Skýjað, NNA 2 m/s, 1,9 °C - Flateyri kl:21:00
VNV 4 m/s, 2,9 °C - Ísafjörður kl:21:00
SV 1 m/s, 2,8 °C - Steingrímsfjarðarheiði kl:21:00
NV 8 m/s, -0,7 °C - Súðavík kl:21:00
N 8 m/s, 2,0 °C



Meira











