Líkfundur á Ströndum
Sif Huld ráðin verkefnisstjóri Byggðasamlags um málefni fatlaðs fól...
Sif Huld Albertsdóttir þroskaþjálfi hefur verið ráðin verkefnisstjóra Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks (BsVest). Stjórn BsVest, sem jafnframt er stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga, samþykkti ráðningu Sifjar fyrir skömmu. Sif Huld er 27 ára Ísfirðingur, þroskaþjálfi að mennt, auk þess sem hún er iðnmenntuð. Hún hefur veitt forstöðu Hæfingarstöðinni Hvestu hjá Ísafjarðarbæ í fæðingarorlofi forstöðumanns, auk þess að hafa starfað innan félagsþjónustu Ísafjarðarbæjar með námi.
Sif tekur við starfi verkefnisstjóra úr höndum Arnheiðar Jónsdóttur, sem sinnt hefur því frá stofnun BsVest í ársbyrjun 2011. Arnheiður hefur tekið við nýju starfi í félagsþjónustu Vesturbyggðar. Í tilkynningu þakkar stjórn BsVest Arnheiði Jónsdóttur mikilsvert starf við uppbyggingu og þróun starfsemi BsVest, um leið og hún býður Sif Huld velkomna til starfa. Í kjölfar þessara breytinga flyst starfsstöð verkefnisstjóra frá Patreksfirði til Ísafjarðar, í Vestrahúsið Árnagötu 2-4, þar sem skrifstofur Fjórðungssambands Vestfirðinga eru. Sími og netfang verkefnastjóra verður óbreytt.
„Auðvitað var þetta sjokk“
„Auðvitað var þetta sjokk. Ég er ekkert smeykur að segja það. Þjálfunin skilaði sér vel, þegar ég var búinn að velta honum, velti ég honum upp aftur og mat stöðuna eftir það,“ sagði Guðni Páll Viktorsson kajakræðari sem lenti í vandræðum í dag þegar hann fékk á sig brotsjó. Hann þá staddur utan við Meðallandssand.
Pilturinn er kominn fram
Pilturinn sem lögreglan á Vestfjörðum lýsti eftir í gærkvöldi fannst í nótt. Pilturinn var í vistun á vegum barnaverndaryfirvalda í Barðastrandasýslu en strauk þaðan snemma í gærmorgun.
Nýja símaskráin komin út: Dreift á 12 afgreiðslustöðum Póstsins á V...
Ný símaskrá kom út í gær. Símaskráin er sú bók sem dreift er í stærsta upplagi á Íslandi. Hún er 1512 síður og prentuð í 100.000 eintökum. Vestfirðingar geta nálgast nýju símaskrána á Pósthúsið í Hafnarstræti 9-13 (Neistinn) á Ísafirði og á ellefu afgreiðslustöðum Póstsins, í Aðalstræti 4 Bolungarvík, Grundarstræti 3-5 Súðavík, Ránargötu 1 Flateyri, Aðalgötu 8 Suðureyri, Fjarðargötu 2 Þingeyri, Bjarkargötu 4 Patreksfirði, Strandgötu 38 Tálknafirði, Lönguhlíð 1 Bíldudal, Hafnarbraut 19 Hólmavík, Borgargötu 2 Drangsnesi og í Kaupfélagshús í Árneshreppi. Þangað má einnig skila gömlum símaskrám til endurvinnslu.
Vinsælar fréttir
- Líkfundur á Ströndum
- Kjördæmisþing Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi verður 12. janúar
- Dagur leikskólans á Lækjarbrekku
- Daníel á Ingunnarstöðum og baráttan við kerfið
- Búið að kjósa í Nemenda- og félagsmiðstöðvarráð
- Ég var að setja yfir 500 myndir af Strandamönnum inn á þennan Hólmavíkurvef, hafið gaman að
- Búkolla og fleiri ævintýri á Ströndum
- Rafmagnsleysi á Vestfjörðum
- Byggingu saltvinnslunnar við Reykhólahöfn miðar vel
- Börnum og unglingum á Ströndum hrósað
- Veðrið í Nóvember 2012
- 8 tonna bátur með 8,6 tonna afla
Ófærar heiðar á Vestfjörðum
Vegir eru að heita má greiðfærir á Suðurlandi en á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði og á Fróðárheiði, hálkublettir eru á Bröttubrekku og snjóþekja á Svínadal. Það er ófært bæði á Steingrímsfjarðarheið og Þröskuldum en Innstrandavegur er fær. Snjóþekja eða nokkur hálka er allvíða á norðanverðum Vestfjörðum en hálkublettir sunnanmegin. Hálka og skafrenningur er á Klettsháls.
Á Norðurlandivestra er þungfært á Þverárfjalli en annars hálkublettir nokkuð víða. Hálka er á Öxnadalsheiði.
Á Norðausturlandi er snjóþekja og skafrenningur eða éljagangur á flestum leiðum. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Fljótsheiði og Mývatnsöræfum.
Á Austurlandi er snjóþekja á Vopnafjarðarheiði og Möðrudalsöræfum. Hálka er á Fagradal en hálkublettir á Fjarðarheiði og Oddskarði. Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði.
Vegir á Suðausturlandi eru að mestu greiðfærir.
Á Þverárfjalli, vegi númer 744, er vegur mjög ósléttur og hraði því tekinn niður í 70 km/klst. Ásþungi er takmarkaður við tíu tonn.
%foreign_more%Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins
1. maí er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins. Vinnandi stéttir hafa borið fram kröfur sínar um mannsæmandi kjör og líf með reisn frá árinu 1889, þegar Alþjóðasamband jafnaðarmanna lýsti daginn baráttudag fyrir 8 stunda vinnudegi. Launafólk um allan heim ber fram kröfur sínar í kröfugöngum, á baráttufundum, menningarsamkomum og skemmtunum. Á Íslandi fór fyrsta kröfugangan fram í Reykjavík árið 1923 á vegum verkalýðsfélaganna og Alþýðuflokksins. Nú eru farnar kröfugöngur í öllum helstu bæjum landsins og verkalýðsfélögin efna til baráttufunda víða um land. Kröfugöngur leggja upp á Ísafirði og á Suðureyri klukkan 14 í dag.
Baráttumál hinna vinnandi stétta eru enn sem fyrr þau sömu. Að verkafólk njóti afraksturs vinnu sinnar, bættra lífskjara og aukinna lífsgæða. Að þessu sinni eru áherslur stéttarfélaganna hefðbundin krafa um atvinnu og velferð. Í ljósi þjóðfélagsþróunar síðustu ára, eru það sígild markmið. Alveg eins og árið 1889, þegar 1. maí var lýstur dagur verkalýðsins. Skutull.is sendir öllu launafólki baráttukveðjur í tilefni dagsins.
%foreign_more%Kosningu lokið í Árneshreppi
Kjörstað hefur verið lokað í fámennasta hreppi landsins, Árneshreppi. Ingólfur Benediktsson, formaður kjörstjórnar í Árneshreppi, segir við fréttastofu að kosningin hafi gengið vel fyrir sig, þrjátíu hafi kosið í dag auk þess sem fimm kusu utan kjörfundar. 43 voru á kjörskrá í Árneshreppi.
Ingólfur segir að þau hafi gengið úr skugga um að allir hafi kosið sem geti það, nú sé bara beðið eftir lögreglunni til að ná í atkvæðin. „Við erum bara að drekka kaffi og fá okkur pönnukökur,“ segir Ingólfur og bætir því við að veðrið hafi verið gott, þeir hafi ekki þurft að moka neina vegi eins og Alþingiskosningunum fyrir fjórum árum. Atkvæði í Árneshreppi verða talin í Borgarnesi.
%foreign_more%Talið á Vestfjörðum ef fjallvegir lokast
16,3 prósent höfðu mætt á kjörstað í Norðvesturkjördæmi upp úr klukkan tvö í dag. Ekki er vitað um kjörsókn í öllum kjördeildum kjördæmisins en vonir standa til að þær verði tiltækar seinni partinn í dag. Búist er við að veður geti hamlað talningu í Norðvesturkjördæmi og segir Ríkharður Másson formaður kjörstjórnar að gerðar hafi verið ráðstafanir fari svo að hægt verði að koma kjörgögnum á talningastað í Borgarnesi. Helst er óttast að færð verði slæm á Steingrímsfjarðarheiði og yfir Klettsháls. Verði vegirnir ófærir verða atkvæði einnig talin á Ísafirði og á Patreksfirði.
%foreign_more%Skynsamlegt að kjósa snemma
Kjósendur á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi eru hvattir til að kjósa með fyrra fallinu á morgun þar sem tvísýnt er með veður seint annað kvöld, á kjördag. Vegagerðin mun moka flesta fjallvegi á morgni kjördags en spáin er þannig í nótt (aðfararnótt laugardags) að færð gæti spillst.
Vetrarþjónusta verður eftir því sem þörf er á á kjördag.
Á vefsíðu Vegagerðarinnar segir að veðurspáin sé slæm seint á kjördag og þá helst undir miðnætti. Á sunnanverðum Vestfjörðum lýkur kjörfundi sumstaðar kl. 20:00 og því best að vera fyrr á ferðinni með að kjósa og kanna hvenær kjörstöðum lokar.
Þetta á við um Vestfirði sérstaklega og einnig Norðurland og Austurland. Búast má við ófærð á fjallvegum að morgni kjördags, þar sem í kvöld hvessir og mikill snjór er á fjöllum. Seint annað kvöld er spáð aukinni norðanátt, rólegri til að byrja með en síðan hvessir þegar á líður.
Því er ljóst að nokkur vandkvæði geta orðið með að koma kjörgögnum á talningarstaði vegna veðurs.
%foreign_more%Vorhátíð Finnbogastaðaskóla
Vorhátíð Finnbogastaðaskóla verður haldinn hátíðleg síðasta vetrardag miðvikudaginn 24. apríl klukkan 18:00.,í Félagsheimilinu Árnesi Trékyllisvík. Boðið verður upp á góða skemmtun, mat og drykk á góðu verði. Allir eru hjartanlega velkomnir. Segir í tilkynningu frá nemendum og starfsfólki Finnbogastaðaskóla.
%foreign_more%Viðburðardagatal
Næstu viðburðir
Vestfirðir á Instagram #Vestfirðir
Framlög Menningarráðs Vestfjarða til menningarstarfsemi 2013
Menningarráð Vestfjarða hefur nú lokið við úthlutun styrkja fyrir árið 2013 og eru niðurstöður nokkuð fyrr á ferðinni en síðustu ár. Umsóknir til ráðsins hafa aldrei verið fleiri en nú eða 160 samtals. Jafnframt hafa gæði umsókna líklega aldrei verið meiri en nú. Margvísleg menningarstarfsemi fær stuðning og er ánægjulegt að sjá þá grósku og hugmyndaauðgi sem einkennir menningarlífið á Vestfjörðum.
%foreign_more%Maskadagur og þrif í Barmahlíð fyrir 25 ára afmælið
Misjafnt er eftir landshlutum hvenær „maskadagurinn“ er haldinn (d. maske: gríma) og hvaða venjur fylgja þeim degi á hverjum stað. Barmahlíð á Reykhólum á sinn eiginn maskadag auk hinna. Í dag var starfsfólkið í Barmahlíð í alls konar múnderingum og með alls konar grímur og allir í þrifum.
„Já, þetta er bara eitthvað til gamans. Við reynum alltaf fyrir Barmahlíðardaginn að taka sérlega vel til og flikka svolítið upp á heimilið. Núna erum við að reyna að vera alveg sérstaklega hátíðleg til að halda upp á 25 ára afmælið. Annars má segja að þetta sé árlegur tiltektardagur fyrir Barmahlíðardaginn,“ segir Þuríður Stefánsdóttir hjúkrunarforstjóri.
Núna þann 11. mars voru liðin 25 ár frá því að fyrsta heimilisfólkið fluttist inn í Barmahlíð. Hins vegar hefur sú hefð skapast að halda Barmahlíðardaginn hátíðlegan vor hvert á sumardaginn fyrsta. Hann ber núna upp á 25. apríl og þá verður sérstakur 25 ára afmælisfagnaður í Barmahlíð.
Því mætti skjóta hér inn, að á sumardaginn fyrsta er líka fimm ára afmæli Reykhólavefjarins.
Myndirnar voru teknar í Barmahlíð í dag. Smellið á þær að venju til að stækka.
%foreign_more%Krafa um að Daníel verði borinn út
Landsbanki Íslands hefur krafist þess að Daníel Jónsson, bóndi á Ingunnarstöðum í Reykhólahreppi, verði borinn út af jörðinni. Lögmaður hans krefst þess að beiðninni verði hafnað. Daníel hefur í fimm mánuði beðið eftir svari frá atvinnuvegaráðuneytinu við kæru sem hann sendi vegna ákvörðunar Matvælastofnunar um að svipta hann starfsleyfi.
Matvælastofnun svipti Daníel starfsleyfi 12. nóvember sl. vegna athugasemda sem stofnunin gerði, m.a. vegna þess að neysluvatn stóðst ekki kröfur. Um þetta hefur m.a. verið fjallað í frétt á mbl.is og í ítarlegri frétt í janúar.
%foreign_more%Burtfarartónleikar Árnýjar Bjarkar í Háteigskirkju
Sveitungar og samferðamenn, nær og fjær athugið! Föstudagskvöldið 19. apríl næstkomandi, mun sópransöngkonan Árný Björk Björnsdóttir frá Melum í Trékyllisvík halda burtfarartónleika í Háteigskirkju. Munu tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Dagskrá tónleikanna er fjölbreytt og snert verður á ýmsum gullmolum tónlistarsögunnar og ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á tónleikunum koma einnig fram þær Kristín Anna Guðmundsdóttir sópran og Ellen Björg Björnsdóttir. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis og allir hjartanlega velkomnir! Að tónleikunum loknum verður gestum boðið að þiggja veitingar í sal kirkjunnar.
%foreign_more%52 bankaútibúum lokað frá hruni
52 bankaútibúum hefur verið lokað síðan fyrir hrun og hátt í 2000 manns hefur verið sagt upp. Flestir eru konur og Vestfirðir hafa komið verst út, segir Friðbert Traustason, formaður Sambands Íslenskra bankamanna.
Fjórum af níu starfsmönnum útibús Landsbankans á Hvammstanga hefur verið sagt upp störfum. Eru uppsagnirnar liður í hagræðingum í rekstri Landsbankans. Um 1400 færri starfa nú hjá fjármálafyrirtækjum en fyrir hrun. Milli fjögur og fimm hundruð starfa tímabundið fyrir skilanefndirnar þannig að gera má ráð fyrir að um 2000 manns alls missi vinnuna.
Bankar og útibú voru fyrir hrun um 150 en eru nú um 100. 50 færri bankaútibú eru á landinu. 58 útibú voru á höfuðborgarsvæðinu árið 2007 en eru nú 32. Þeim hefur fækkað um 26. Utan höfuðborgarsvæðisins voru 99 útibú árið 2007 en eru nú 73 og hefur þeim því fækkað um 26. Ástandið er verst á Vestfjörðum. Samtals voru 157 útibú árið 2007 en eru nú rétt um 100 og hefur þeim því fækkað um 52 síðan rétt fyrir hrun.
„Þar er orðið afskaplega lítið um bankaþjónustu, hún er í Bolungarvík og á Ísafirði og í Hólmavík. Annars staðar er búið að loka. Það er líka búið að loka víða á Norðurlandinu. Það er helst að Austfirðirnir hafi sloppið sæmilega,“ segir Friðbert. „Í þessum útibúum voru yfir 90% starfandi konur þannig það eru fyrst og fremst konur sem hafa misst vinnuna,“ segir hann.
%foreign_more%Skólahaldi frestað vegna ófærðar
Vegna ófærðar er skólahaldi í grunnskóladeild Reykhólaskóla frestað til kl. 11 í fyrramálið, mánudaginn 15. apríl. Hætta er á enn frekari seinkun og því eru foreldrar hvattir til að fylgjast vel með heimasíðu og Facebooksíðu skólans.
%foreign_more%Óttast að mæta ísbirni á leið til vinnu á myrkum vetrarmorgni
Ímyndaðu þér samfélag þar sem framhald þekkist ekki og samstaða íbúanna er svo sterk að alvarleg átök hafa ekki þekkst síðan kirkjan var reist. Samfélag þar sem íbúar eru svo fáir og samgöngur svo lélegar að fólkið verður að treysta á hvert annað. Til að finna það þá keyrir þú veginn á enda, norður á Strandir og inn í Árneshrepp, nyrsta sveitarfélagið í Strandasýslu og það minnsta á landinu. Hér smalar enginn einn heldur smala allir með öllum.
%foreign_more%Listi Landsbyggðarflokksins í Norðvesturkjördæmi
Landsbyggðarflokkurinn hefur fengið úthlutaðan listabókstafinn M af innanríkisráðuneytinu og mun í það minnsta bjóða fram í Norðvesturkjördæmi.
M-listi Landsbyggðarflokkurinn í Norðvesturkjördæmi er sem hér segir:
1. Ylfa Mist Helgadóttir, sjúkraliðanemi og söngkona
2. Steinunn Ýr Einarsdóttir, húsmóðir og nemi
3. Sóley Veturliðadóttir, þroskaþjálfi og sérkennslustjóri
4. Haukur Már Sigurðarson, verslunarmaður
5. Svanur Ingi Björnsson, kjötvinnslumaður
6. Guðmundur G. Guðmundsson, skipaskoðunarmaður
7. Björgúlfur Egill Pálsson, nemi
8. Þorsteinn J. Tómasson, framreiðslumeistari og bifreiðastjóri
9. Brynjar Gunnarsson, sjómaður
10. Ingunn Ósk Sturludóttir, tónlistarkennari og söngkona
11. Guðrún Guðný Long, hársnyrtir og öryrki
12. Dagný Þrastardóttir, húsgagnasmiður
13. Gunnar Jónsson, myndlistarmaður
14. Guðný Sóley Kristinsdóttir, snyrtifræðingur
15. Magnús Hávarðarson, tölvu- og kerfisfræðingur
16. Guðlaugur Jónsson, vélstjóri
%foreign_more%Veðrið á Vestfjörðum
- Bíldudalur kl:15:00
SV 8 m/s, 6,7 °C - Gemlufallsheiði kl:15:00
S 5 m/s, 3,0 °C - Patreksfjörður kl:15:00
SV 5 m/s, 7,7 °C - Reykhólar kl:15:00
V 4 m/s, 7,2 °C - Tálknafjörður kl:15:00
SSV 7 m/s, 6,7 °C
- Bolungarvík kl:15:00
SSA 2 m/s, 7,9 °C - Flateyri kl:15:00
SA 6 m/s, 5,8 °C - Ísafjörður kl:15:00
A 4 m/s, 6,6 °C - Steingrímsfjarðarheiði kl:15:00
S 5 m/s, 1,4 °C - Súðavík kl:15:00
VSV 3 m/s, 8,4 °C



Meira













