Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband

Verkafólk hjá Vísi á Þingeyri býr við mikið óöryggi

skutull.is | þriðjudagurinn 10. júlí 2012 kl. 10:38

,,Við vitum ekkert hvað er að gerast hérna," segir Sólveig Jónsdóttir, fiskvinnslukona hjá Vísi á Þingeyri, í viðtali við Fréttablaðið í gær. Vinnslustöðvun hefur verið hjá fiskvinnslu Vísis á Þingeyri frá 1. júní. Hún segir að auglýst hafi verið í vinnsluhúsinu að vinna hefjist að nýju þann 3. september næstkomandi en þó sé fólk óöruggt um að sú verði raunin. Um þrjátíu manns vinna hjá fyrirtækinu á Þingeyri. ,,Það var eiginlega ekkert unnið í maí, svo kom vinnslustoppið 1. júní og við erum á atvinnuleysisbótum þar til 27. júlí en þá erum við víst í sumarfríi," segir Sólveig. Vísir er stærsti atvinnuveitandinn á Þingeyri. Sólveig segir að á mörgum heimilum vinni báðar fyrirvinnurnar hjá fyrirtækinu og því sé víða erfitt að færa björg í bú. Vinnslustopp hafi verið meira og minna á sumrin undanfarni ár, og um síðustu áramót hafi ekki verið byrjuð vinnsla fyrr en 23. janúar eftir jólastopp og þá hafi aðeins verið unnið frá 8 til 3 á daginn.

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir