Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband
fimmtudagurinn 21. júní 2012

Sköpum opna og líflega verslunargötu á Ísafirði

Eftir að hafa lokið BA prófi í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands hafa hef ég haft mikinn áhuga á byggingum og borgarrými. (e. Public space) Hvernig byggingar móta umhverfi okkar og hegðun fólks.

 

Eitt það mikilvægasta við að skapa gott borgarumhverfi er að byggingarnar og starfsemin í þeim nái tenginu við umhverfi sitt, að byggingin gefi af sér út í borgarrýmið. 

 

Í því ljósi er áhugavert að skoða nokkrar verslanir við verslunargötuna á Ísafirði.

 

 

Þetta er ferðamannaverslun...

 

Hér fyrir innan er bókaverslun...

 

Og þetta er Pósthúsið...

 

Þetta er byggingarvöruverslunin á Ísafirði...

 

Og heilsusetur...

 

Hérna eru svo skrifstofur, held ég...

 

Ætlun mín er ekki að benda á nokkra sökudólga, heldur eru þetta aðeins dæmi um byggingar sem gefa ekkert af sér út í borgarrýmið. Dæmi um „Dauðar byggingar“ sem veikja verslunargötuna. 

 

Ég hefði einnig getað tekið fjölda annara dæma um það þegar gluggarnir eru blokkaðir með öflugri sólarfilmu eða útstillingagluggum sem gefa litla sem enga tengingu út í borgarrýmið. Í raun hefði verið einfaldara að taka myndir af þeim byggingum sem gefa af sér. Þar má helst nefna Hamraborg, það er gott dæmi um það hvernig öflug og opin bygging getur gefið af sér og skapað líf.

 

Það má einnig benda á Bókhlöðuna þrátt fyrir þessa leiðindar filmur í gluggunum hjá þeim, þá hafa þeir gert mjög góða hluti fyrir framan verslunina við Silfurtorg. Þar eru engar filmur í gluggunum og á góðviðrisdögum má sjá borð og stóla þar fyrir utan. Enda er alltaf töluvert líf þar á daginn á meðan filmaða hliðin er dauð. - Einfalt dæmi um hvað það skiptir borgarrýmið miklu máli að byggingin gefi af sér.

 

En auðvitað eru þessar filmur og gardínur settar upp til að fela ljóta rekka og annað sem er fyrir innan gluggana. En það er ekki vandamálið, því má bjarga með því að skipuleggja innviði verslunarinnar betur.

 

Líf inn í verslunum skapar líf fyrir utan þær og líf fyrir utan verslanir skapar líf inni í verslunum. Því er sorglegt að sjá þegar klippt er á tenginguna á milli verslunar og borgarrýmis, við það verður bæði verslunin og borgarrýmið veikara.

 

Kaupmenn, opnum verslanir okkar, bjóðum fólk velkomið í opna og líflega verslunargötu.

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir