Einstöksýning Haukadal
Fjórða árið í röð standa listahjónin á Gíslastöðum fyrir Einstakrisýningu. Að vanda er list einfara í íslenskri myndlist gerð vegleg skil og að þessu sinni er Sigurlaug Jónasdóttir í aðalhlutverki. Einstöksýning var opnuð á fimmtudag og verður opin alla daga milli kl.13 - 16 allt til 12. júlí. Aðgangur að sýningunni er ókeypis einsog verið hefur frá upphafi. Auk verka Sigurlaugar eru á Einstakri sýningu sjötíu verk eftir listahjónin á Hofi í Dýrafirði, myndir eftir Stórval og eftirprentanir eftir Sölva Helgason. Allir þessir listamenn flokkast undir einfara í íslenskri myndlist og er sagt frá þeim í samnefndri bók. Ekki er þó allt talið því einnig er uppi spjaldasýning um sögu einleikjalistarinnar á Íslandi. Vippið ykkur í Dýrafjörðin fagra og kikkið á Einstakasýningu á Gíslastöðum í Haukadal.
Ljúft og skyllt er að geta þess að Menningarráð Vestfjarða styrkir Einstaka sýningu og er vert að þakka þúsundfalt fyrir framlagið.










