Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband
miðvikudagurinn 27. júní 2012

K.Svava Einarsdóttir: Er blóðgjöf aðeins lífgjöf fyrir útvalda?

Ég hef verið reglulegur blóðgjafi undanfarin 7 ár og stolt af því.  Á fjögurra mánaða fresti fæ ég sms og email, þar sem ég er minnt á það að ég geti komið og gefið blóð.   Þetta skiptir mig miklu máli.  Faðir minn gaf blóð frá því að hann hafði aldur til og þar til hann greindist með krabbamein og hefur ekki mátt gefa blóð síðan.  Það var þá sem ég ákvað að halda uppi hans örlæti með því að gefa blóð sjálf. 

 

Nú er staðan sú að ég starfa á Ísafirði í sumar.   Áminning mín um að gefa blóð barst mér fyrir nokkrum dögum síðan.   Ég hringdi á Sjúkrahúsið á Ísafirði og fékk því miður þær upplýsingar að ekki er hægt að gefa blóð þar.   Því næst hringdi ég í blóðbankann í Reykjavík til að athuga hvernig væri með blóðbankabílinn.   Þar var mér tjáð að bíllinn færi ekki svo langt vestur.   Ég get gefið blóð á Akureyri, Reykjavík eða í blóðbankabílnum sem verður á Stykkishólmi í september.

Á heimasíðu blóðbankans stendur:

  1. Lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007
    Þar segir m.a. í 20. grein: „Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús. Hann veitir sérhæfða sjúkrahúsþjónustu, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenna sjúkrahúsþjónustu fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins. Hlutverk hans er að:
    ...
    6. starfrækja blóðbanka sem hefur með höndum blóðbankaþjónustu á landsvísu.

Mér finnst virkilega athyglisvert að blóðbankinn hafi í höndum blóðbankaþjónustu á landsvísu en einungis eru tveir staðir sem bjóða upp á blóðgjöf!  Reglulega birtast fréttir um að verulegur skortur sé blóði og  óskað er eftir að sem flestir komi til að gefa.   Það þarf 70 blóðgjafa á dag til að halda fullri starfsemi á sjúkrahúsi, svo framanlega sem ekkert stórslys eða alvarlegt komi upp á.

 

Er það einungis á herðum höfuðborgabúa, Akureyringa og sveitunga í kring að gefa blóð?   Ég geri mér fulla grein fyrir því að það sé búið að skera gífurlega mikið niður í heilbrigðiskerfinu og eflaust einhver skýring á því af hverju blóðbankabíllinn er ekki nýttur í lengri ferðir en til Stykkishólms og eflaust ekki hægt að manna stöður á sjúkrahúsum um land allt til að taka á móti blóðgjöfum.  Mér þykir þetta samt gífurlega sorgleg staða.   Ég hef rætt þessi mál við nokkra Vestfirðinga sem allir eru fúsir og viljugir til að gefa blóð en hafa auðvitað ekki tækifæri á því eins og er í boði fyrir norðan og sunnan.

Mig langar til að hvetja stjórnendur blóðbankans til að senda bílinn til Ísafjarðar, auðvitað væri það draumur að það yrðu reglulegar ferðir svo fleiri geti lagt sitt af mörkum.  Auðvitað ætti þetta að vera í boði um allt land en einhverstaðar verður að byrja.

 

Ég hef stofnað síðu á facebook þar sem ég hvet Vestfirðinga til að sýna samstöðu og láta í sér heyra og fá að taka þátt í lífgjöfinni með því að gefa blóð.

Hérna er linkurinn inn á síðuna:

https://www.facebook.com/events/383214381739835/?context=create

 

Ég vona svo innilega að Ísfirðingar og aðrir sveitungar taki undir þetta með mér og það er mín von að úr þessu rætist.

 

Bestu kveður

K.Svava Einarsdóttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir